Stokkhólmur
Nóbel og næturlíf
Flug til Stokkhólms
Höfuðborg Svíþjóðar er borg andstæðna og einkennist af afslöppuðu andrúmslofti og vinalegu viðmóti heimamanna. Hér er framúrstefnuleg hönnun og nýjasta tíska í bland við miðaldabyggingar, hallir og stórfenglega garða. Fljúgðu með WOW air til Stokkhólms og upplifðu nútímaborgarbrag í sögulegu umhverfi og fikaðu út! Stokkhólmur er smörgåsbord af skemmtun.
Töff og tímalaus
Konungsríkið Svíþjóð er stærst Norðurlandanna og jafnframt fjölmennast. Höfuðborgin er Stokkhólmur, byggð á fjórtán eyjum og stundum kölluð Feneyjar norðursins og við mælum með bátsferð um borgina, eða ferð með ferju út í eyjaklasann umhverfis hana. Stokkhólmur er einstaklega fögur borg og stútfull af spennandi sögu, magnaðri menningu og iðandi mannlífi. Borgin skiptist í ólíka borgarkjarna, hver með sinn persónuleika. Í Gamla Stan, gamla hluta Stokkhólms, er konungshöllin og gamla þinghúsið ásamt fleiri merkilegum byggingum. Svo er líflega og litríka Södermalm eða bara „Söder” eins og heimamenn kalla hverfið. Suður af Folkungagatan í Söder er SoFo, þar sem listamenn og hönnuðir hafa hreiðrað um sig og þar úir og grúir af skemmtilegum vintage búðum, töff kaffihúsum og fyrsta flokks veitingastöðum.
Ráðhús Stokkhólms (Stadshuset) Í Kungsholmen er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar. Þar er stórveisla til heiðurs Nóbelsverðlaunahöfum haldin ár hvert og frá turninum er glæsilegt útsýni yfir borgina þvera og endilanga. Og fyrir þá sem eru í Nóbel-skapi þá er Nóbel-safn í Stokkhólmi sem óhætt er að mæla með.
Íbúafjöldinn í Stokkhólmi er 790.000 og gjaldmiðillinn er sænsk króna.
Fika og fjölbreytt menningarflóra
Fika-hefðin er Svíum afar mikilvæg. En hvað í ósköpunum er fika? Fika þýðir að fá sér kaffi eða kaffistund, en orðið hefur miklu stærri merkingu. Fika er þegar fólk kemur saman, fær sér kaffisopa og bakkelsi og nýtur samverunnar í rólegheitunum. Þetta snýst um félagsskap enda Svíarnir einstaklega vingjarnleg þjóð.
Öll fjölskyldan getur skemmt sér á Skansinum, sem er vinsælt útisafn á eyjunni Djurgården í Stokkhólmi. Safnið var stofnað árið 1891 og er nokkurs konar Árbæjarsafn og Fjölskyldu- og húsdýragarður Stokkhólms. Við mælum líka með ferð á Vasa-safnið sem hýsir hið glæsilega Vasa herskip frá 17. öld. Skipið er það eina sinnar tegundar í heiminum en um 95% af því hefur varðveist. Svo er hægt að skoða stórkostleg listaverk eftir Dali, Picasso og Pollock á Moderna Museet og verk eftir Rembrandt, Degas og fleiri meistara á National Museet. Sjón er sögu ríkari.
Erum við að gleyma einhverju?
Já, Svíþjóð er auðvitað líka heimili H&M, IKEA, Línu langsokks, Astrid Lindgren og köttbulla! Svo má ekki gleyma ABBA! Í Stokkhólmi er vinsælt ABBA-safn, sem gallharðir Júróvisjón aðdáendur geta kynnt sér og svo sungið alla leiðina heim.
Trevlig resa!
Ekki fyrir þig?
Kíktu á hina áfangastaðina okkar
Alicante
Sól og skemmtun
Amsterdam
Túlípanar og tréklossar
Berlín
Menning og ómenning
Brussel
Bjór og belgískar
Cincinnati
Drottning vestursins
Cleveland
Rokkborgin
Dallas-Fort Worth
Draumurinn rætist
Detroit
Bílar, rokk og ról
Dublin
Gleði og góð kaup
Düsseldorf
Tjútt og tíska
Edinborg
Skotapils og sekkjapípur
Frankfurt
Gleði og góðgæti
Gran Canaria
Hiti og hvítar strendur
Kaupmannahöfn
Húmor og hamingja
London Gatwick
Kaupæði og kóngafólk
Montréal
Hönnun og hokkí
New York EWR
Borgin sem aldrei sefur
New York JFK
Frægasta borg í heimi
Nýja-Delí
Ævintýri á Indlandi
Salzburg
Ævintýri og aprés-ski
San Francisco
Brýr og brekkur
St. Louis
Hliðið að villta vestrinu
Tenerife
Sól og sangría
Toronto
Matur og múltíkúltúr
Washington, D.C.
Minnismerki og merkisfólk