Seinkun á farangri
Athugið að fyrstu 5 dagana sér starfsfólk flugvallarins alfarið um leitina að töskunni þinni. Smelltu hér fyrir upplýsingar um tengiliði á flugvöllum WOW air.
Okkur þykir leitt að taskan þín hafi ekki skilað sér með fluginu þínu.
- Núna þarft þú að fylla út skýrslu hjá farangursþjónustu þess flugvallar þar sem þú steigst frá borði.
- Þegar búið er að fylla út skýrsluna reynir starfsfólk flugvallarins að hafa uppi á töskunni þinni. Um leið og taskan finnst verður haft samband við þig og henni komið til þín eins fljótt og auðið er.
- Þeir sem hafa fyllt út skýrslu vegna týnds farangurs geta fylgst með stöðunni á WorldTracer.
Dæmi:
1 stk. svartar Levi's kvengallabuxur, stærð 32 – 9.500 kr.
1 stk. rauð Dior snyrtitaska með snyrtivörum – 6.000 kr.
2 stk. Benetton pils, annað svart og hitt hvítt og blátt – 5.500 kr. o.s.frv.
Ekki gleyma að taka fram heildarverðmæti farangursins.