WOW premium
Borgaðu minna fyrir meira WOW!
WOW premium - Allt sem þú þarft!
WOW premium er góður kostur fyrir þá sem vilja fá meira fyrir minna og fyrirtæki sem setja starfsfólk sitt í fyrsta sæti, en vilja jafnframt halda kostnaði í lágmarki. Bókaðu WOW premium og fáðu forgang um borð, slakaðu á í besta sætinu með miklu fótrými (sætabil allt að 120 cm) og njóttu flugsins eins og best verður á kosið.
Taktu pláss og bókaðu bestu sætin á besta verðinu.
Hvað er innifalið?
Flugmiði
1 innrituð taska
1 handfarangurstaska. Hámarksummál: 56x45x25 cm.
1 lítil taska/veski. Hámarksummál: 42x32x25 cm.
Forfallavernd. Tryggir endurgreiðslu ef hætta þarf við flug af sérstökum ástæðum. Nánar um forfallavernd.
BigSeat. Ótrúlega þægilegt sæti með miklu fótarými.
Forgangsinnritun. Aðgangur að sérstöku WOW premium innritunarborði á Keflavíkurflugvelli með minni biðtíma.
Hraðleið í öryggisleit. Brottfararspjaldið veitir aðgang að sérstöku skoðunarsvæði í öryggisleitinni með minni biðtíma. Gildir fyrir KEF, CPH, EDI og LGW* flugvelli.
Greiðari leið um borð. WOW premium gefur gestum kost á að fara fyrr um borð í vélina og tryggir aðgang að handfarangursrými fyrir ofan sæti.
Máltíð um borð. Fyrirfram pöntuð máltíð á þeim flugleiðum þar sem þjónustan er í boði.Sjá matseðil.
Afsláttur á bílastæðaþjónustu. 50% afsláttur af valet þjónustu BaseParking við Keflavíkurflugvöll.
Betra verð
Premium fargjöld eru yfirleitt talin munaðarvara en á þessu verði eru aukin þægindi og meiri þjónusta á allra ferðalanga færi. WOW premium fargjöldin eru mun hagkvæmari en gengur og gerist.
Meiri sveigjanleiki
Slepptu biðröðunum og hafðu það gott á flugvellinum. Það fílar enginn biðraðir og það sparar óneitanlega tíma að fá forgang um borð og hraðleið í gegnum öryggisleit*. Jafnframt er forfallavernd innifalin ef eitthvað óvænt kemur upp á.
Aukin þægindi
WOW premium fylgir alltaf BigSeat, sem er ótrúlega rúmgott og þægilegt sæti með mjúku sætisbaki og nægu fótaplássi fyrir ferðalúna fætur. Slakaðu vel á í BigSeat og lentu hress á áfangastað.
*Keflavík, Kaupmannahöfn, Edinborg og London Gatwick.