Golf fyrir fagurkera
Íslenskir kylfingar njóta oft einlægrar aðdáunar erlendra golfáhugamanna fyrir það eitt að stunda íþrótt sem stólar svo mjög á veður og vinda að það hlýtur bara að setja strik í golfreikninginn að búa á eyju norður í Atlantshafi. En þótt Íslendingar kalla ekki allt ömmu sína njóta margir kylfingar þess að heimsækja staði sem bjóða upp á töluvert blíðari golfupplifun í sumarfríinu og þá er svo sannarlega úr mörgu að velja. Við fundum nokkra frábæra golfvelli í þægilegri ferðafjarlægð fyrir veðurbarna Íslendinga sem eiga gott frí skilið.
Skotland
Gamli völlurinn (The Old Course) í St. Andrews í Skotlandi ber nafn með rentu en hann er nánast jafngamall íþróttinni sjálfri eða frá 16. öld. Hann er ítrekað metinn einn af fimm bestu golfvöllum í heimi og margir líta á golfferð til St. Andrews sem pílagrímaferð kylfingsins. St. Andrews er aðeins klukkutíma frá flugvellinum í Edinborg og því stutt fyrir Íslendinga að heimsækja þennan sögufræga og magnaða golfvöll.
Írland
Old Head í Cork á Írlandi er par 72 völlur sem stendur á hamraklæddum höfða sem teygir sig út í Atlantshafið og þar hefur margur kylfingurinn staðið orðlaus af aðdáun yfir náttúrufegurðinni. Upplifunin er stórbrotin og aðbúnaðurinn fyrsta flokks á þessum eftirsótta og ógleymanlega golfvelli.
K-Club er aðeins hálftíma frá flugvellinum í Dublin en þar er að finna tvo glæsilega golfvelli sem hannaðir voru af stórmeistaranum Arnold Palmer. Báðir vellirnir þykja fyrsta flokks og til marks um það var Ryder Cup mótið haldið hér árið 2006. Þessir golfvellir eru krefjandi gæðingar sem gaman er að spreyta sig á og ekki er verra að hér er lögð mikil áhersla á fimm stjörnu lúxus og þægindi.
England
Tilgate Forest golfklúbburinn í Crawley í Englandi er falin perla en vinsæll völlur meðal heimamanna. Þessi 18 holu golfvöllur stendur á grónu svæði sem eitt sinn tilheyrði hinni gullfallegu Tilgate landareigninni en það tekur rétt rúmlega kortér að komast á golfvöllinn frá Gatwick flugvelli.
Í Tudor Park er að finna dásamlega enskan golfvöll þar sem hver hola hefur sinn persónuleika og sitt einstaka útsýni. Sveitarómantíkin í Kent ræður hér ríkjum en þessi golfvöllur er ekki bara til sýnis, það er líka vel þess virði að taka hringinn. Það tekur 45 mínútur að komast á Tudor Park golfvöllinn frá færibandinu á Gatwick.
Spánn
Um 30 mínútur frá Alicante eru tveir mjög flottir golfvellir sem tilheyra hinu glæsilega hóteli Melia Villaitana. Levante-völlurinn er þægilegur og skemmtilegur par 72 völlur og Poniente-völlurinn er frábær par 62 völlur. Báðir vellir eru mjög vandaðir og þægindin eru hér í fyrirrúmi. Í þokkabót er stórkostlegt útsýni yfir Benedorm og Miðjarðarhafið af báðum völlum. Gott golf, sól og fegurð… Er hægt að biðja um meira?
Miami
Crandon Golf í Key Biscayne á Miami er dásamlegur golfvöllur á viðráðanlegu verði. Hér reynir þægilega á meðaljóninn í yndislegu umhverfi og að sjálfsögðu er hér nánast alltaf sól. Við mælum samt með því að kylfingar taki með sér nokkrar aukakúlur því þessar vatnstorfærur eru ekkert grín.
San Francisco
Tvo tíma suður af San Francisco er að finna golfklúbbinn Cypress Point Club sem var valinn þriðji besti golfvöllur Bandaríkjanna af tímaritinu Golf Digest. Þessi par 72 völlur er tímalaust meistarastykki Alister Mackenzie og hlykkjast um kýprusviðinn, sandgryfjur og útskorna strandlengjuna.
Fyrir þá sem sjá sér enga leið færa inn í þennan golfklúbb fyrir útvalda þá lenti Pebble Beach golfvöllurinn í sjöunda sæti á sama lista en sá er opinn almenningi og aðeins 10 mínútum sunnar á vesturströndinni. Pebble Beach er gríðarlega fallegur og dramatískur völlur þar sem kylfingar heyra brimið brotna á ströndinni fyrir neðan sig á meðan þeir tækla skemmtilegar holurnar. Það er eiginlega ekki hægt að eiga slæman dag Pebble Beach.
WOW air flýgur til 33 áfangastaða í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu allan ársins hring og það er ekkert mál að taka golfsettið með. Bókaðu ódýrt flug með WOW air og eyddu afganginum í draumagolfferðina.
____
Myndir: Old Head Golf Links, iStockphoto og Shutterstock