WOW á fjólubláum hjólum
WOW air stofnaði nýlega hjólaleigu í Reykjavík sem gefur íbúum og gestum tækifæri til að snatta og skoða höfuðborgina á þægilegri máta á eigin vegum.
Borgarhjólaleigur eru vel þekkt fyrirbæri um allan heim. Allt frá Bandaríkjunum og Kanada, til Bretlands og Kína hefur þessi einfalda hugmynd um að samnýta borgarhjól tekið sér bólfestu í flestum stórborgum og hjólin eru vel nýtt og vinsæl. Það var tímabært að Reykjavík fengi sín borgarhjól og WOW air, flugfélagið sem er svo stolt af hjólamenningu sinni (svo ekki sé minnst á WOW Cyclothon viðburðinn sinn) tók það að sér með glöðu geði að bjóða íbúum og gestum Reykjavíkur upp á þessa notendavænu hjólaleigu
WOW air opnaði átta hjólaleigustöðvar í miðbæ Reykjavíkur og næsta nágrenni í júní á þessu ári. Hjólaleigunni er ætlað að bjóða upp á ódýran farkost fyrir styttri ferðir. Þetta gefur hjólreiðamönnum tækifæri til að sleppa því að nota bifreiðar en ferðast samt fljótt og auðveldlega frá einum stað til annars þar sem hægt er að skila hjólinu og taka það svo aftur þegar tímabært er að halda ferðinni áfram. Þessi hagkvæmi kostur er skemmtilegri en strætó eða leigubíll og þægileg leið til að snatta um Reykjavík.
„Hjólreiðar eru frábær ferðamáti sem hafa stöðugt verið að aukast enda bæði góðar fyrir heilsu og umhverfið. Við erum stolt af því að hafa lagt okkar að mörkum fyrst með WOW Cyclothon og núna með tilkomu WOW citybike sem án efa á eftir að setja lit á umhverfið og skapa skemmtilega og lifandi stemningu í Reykjavík. Ég vil einnig þakka Reykjavíkurborg fyrir að vinna með okkur í að láta þennan draum rætast,“ segir Skúli Mogensen eigandi og forstjóri WOW air.
Hver hjólar þarna eftir Austurstræti...
Það er umhverfisvænt að fara ferða sinna á reiðhjóli. Hjólreiðar draga úr umferðarþunga, hávaða og loftmengun. Við mælum eindregið með því að snatta um miðbæinn á hjóli.
Það er auðvelt að leigja WOW citybike. Farðu á hvaða WOW citybike stöð sem er og notaðu kreditkortið þitt í söluturninum til að skrá þig inn og fá kóða. Notaðu kóðann til að losa hjól úr standi og hjólaðu eins og þér sýnist í allt að 30 mínútur fyrir aðeins 400 krónur. Skilaðu hjólinu á hvaða WOW citybike stöð sem er áður en að hálftíminn þinn er liðinn og bíddu í a.m.k. tvær mínútur áður en þú tekur hjólið aftur ef þú átt ennþá tímainneign eða keyptu þér aðra 30 mínútna inneign. Þú getur gert þetta allan liðlangan daginn en ef þú ákveður að fara í lengri hjólatúr á WOW citybike kostar hver hálftími aukalega 600 krónur.
Við vonumst til að sjá alla á hjóli í Reykjavík í sumar enda umhverfisvænn fararkostur til að reka lítil og stór erindi í borginni.
WOW citybike hjólin eru ryðvarin og styrkt með álramma og aukahluti úr stáli. Á hjólunum eru þrír gírar, bremsur beggja megin í handfangi og stillanleg sæti. Dekkin eru endingargóð og sérstaklega styrkt gegn sliti þannig að síður springur á þeim. Sömu hjól eru notuð í Chicago, Washington D.C. Montréal og London. WOW air býður upp á 100 reiðhjól sem er dreift á átta hjólastöðvar.