Boston
Bolti og búðaráp
Flug til Boston
Matur, menning, verslanir, Harvard og huggulegheit. Fljúgðu með WOW air vestur um haf og brostu í Boston. Þessi sjarmerandi stórborg tekur vel á móti þér enda stútfull af skemmtilegri afþreyingu fyrir unga sem aldna. Kíktu á hafnaboltaleik á Fenway Park og styddu heimaliðið Boston Red Sox, farðu á ærlegt búðaráp, kynntu þér merkilega sögu og skemmtileg hverfi, og njóttu lífsins í einni elstu borg Bandaríkjanna.
Heillandi menning og einstök borgarmynd
Borgin Boston hefur um árabil verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga í Bandaríkjunum. Boston er borg andstæðnanna, þar sem gömul og ný menning mætast, háhýsi gnæfa yfir fallega grónum görðum og margrómuð pizzan er jafn hátt metin og fínasti humar á fyrsta flokks veitingastöðum. Hvort sem þú vilt ferðast um sumar eða vetur tekur Boston vel á móti þér.
Hlýtt sumarið dregur fólk út undir bert loft en kaldur veturinn er engu minna fjörugur.
Yfir sumarmánuðina er hitinn yfirleitt í kringum 20°C en getur farið í 30°C. Vetrardagana er hitinn við frostmark. Köldustu dagana fer hitinn niður í um -5°C, en vel klæddir Íslendingar ættu ekki að láta það á sig fá og borgin er svo heillandi að auðvelt er að gleyma kuldanum.
Gjaldmiðillinn í Boston er bandarískur dollari og borgin þekkt fyrir flottar verslunargötur og gott úrval verslunarmiðstöðva.
Flugvöllurinn Boston Logan International er staðsettur rétt um 6 km norðaustur af borginni og lestarferðir, rútur og leigubílar skila þér á leifturhraða hvert sem þú vilt komast
Útsala á hverjum degi
Það er nóg um að vera í Boston á hvaða tíma árs sem er. Gott er að skipuleggja ferðina vel og pakka niður þægilegum skóm því það er margt að sjá og upplifa. Matur, menning, verslanir og næturlíf Boston svíkja engan enda borgin vinsæll áfangastaður bæði meðal erlendra og innlendra ferðamanna.
Vinsælt er að heimsækja hinn sögufræga leikvöll Fenway Park, og ekki verra ef hægt er að verða sér úti um miða á einn hafnarboltaleik og sjá The Red Sox á heimavelli. Völlurinn hefur einnig þjónað sem tónleikasvið fyrir sum af stærstu nöfnunum í bandarískri tónlistarsögu og vel þess vert að kynna sér sögu þessa merka staðar.
Í Boston er elsta almenningsskautasvell Bandaríkjanna, The Frog Pond, og gaman að upplifa rómantíkina eins og hún gerist best, skautandi um í frostinu, hönd í hönd. Sé takmarkið að gera góð kaup má nefna að enginn söluskattur er á fötum undir $175 dollurum og aðeins 6,25% skattur á annarri vöru. Það má því segja að í Boston sé útsala á hverjum degi og ekki skemmir ríkulegt úrvalið fyrir.
Viljirðu sjá borgina frá besta stað er kjörið að heimsækja Top of the Hub en útsýnið þaðan þykir einstakt, sérstaklega eftir að snjór hefur fallið á borgina. Í Cambridge í Boston er einn virtasti skóli heims, Harvard-háskóli, og skemmtilegt að rölta um háskólasvæðið, sem hefur birst í kvikmyndum á borð við Good Will Hunting og Legally Blonde. Ómögulegt væri að telja upp alla þá spennandi staði sem Boston hefur upp á að bjóða en ljóst að borgin er ógleymanlegur áfangastaður fyrir unga jafnt sem aldna.
Ekki fyrir þig?
Kíktu á hina áfangastaðina okkar
Alicante
Sól og skemmtun
Amsterdam
Túlípanar og tréklossar
Berlín
Menning og ómenning
Brussel
Bjór og belgískar
Cincinnati
Drottning vestursins
Cleveland
Rokkborgin
Dallas-Fort Worth
Draumurinn rætist
Detroit
Bílar, rokk og ról
Dublin
Gleði og góð kaup
Düsseldorf
Tjútt og tíska
Edinborg
Skotapils og sekkjapípur
Frankfurt
Gleði og góðgæti
Gran Canaria
Hiti og hvítar strendur
Kaupmannahöfn
Húmor og hamingja
London Gatwick
Kaupæði og kóngafólk
Montréal
Hönnun og hokkí
New York EWR
Borgin sem aldrei sefur
New York JFK
Frægasta borg í heimi
Nýja-Delí
Ævintýri á Indlandi
Salzburg
Skíði og aprés-ski
San Francisco
Brýr og brekkur
St. Louis
Hliðið að villta vestrinu
Tenerife
Sól og sangría
Toronto
Matur og múltíkúltúr
Washington, D.C.
Minnismerki og merkisfólk