Varsjá
Saga og sjarmi
Flug til Varsjár
Höfuðstaður Póllands kemur skemmtilega á óvart. Varsjá er uppfull af menningu, sögu og skemmtilegu fólki og vert að bæta þessari heillandi borg á listann yfir staði til að heimsækja. Það er ómissandi að rölta um gamla bæinn og þræða götumarkaðina. Fljúgðu með WOW air til Varsjár.
Lystigarðar, tónskáld og saga
Varsjá er höfuðborg Póllands og fjölmennasta borg landsins með tæplega tvær milljónir íbúa. Varsjá eða Warzawa eins og Pólverjar kalla borgina sína er einn af áhugaverðari ferðamannastöðum í Evrópu. Um aldir var borgin miðja menningar og lista en þessi miðaldarborg býður upp á spennandi sögu og úrval safna. Og hér rennur mjöðurinn. Hitinn er einnig mátulegur fyrir okkur Íslendinga en um háveturinn er meðalhiti um 2°C á daginn og um hásumarið um 24°C. Gjaldmiðillinn í Varsjá er zloty og verðlagið er fremur hagstætt.
Warsaw Chopin (WAS) flugvöllurinn er 10 km suðvestur af miðbæ Varsjár. Auðvelt er að ná í leigubíla af flugvellinum en líka er hægt að taka lest og einnig ganga tvær rútur, leið 175 og 182 reglulega í miðbæinn.
Pólskir Versalir og gamla markaðstorgið
Um aldir var Varsjá miðja menningar í Póllandi. Fjöldi staða minna enn á langa sögu menningar, lista og arkítektúrs eins og t.d. miðaldamarkaðstorgið, sem umlykur húsin sem eru byggð í endurreisnar- og barrokkstíl. Í Lazienski-garðinum er Vatnahöllin frá 18. öld en einnig er fróðlegt að skoða menningar- og vísindahöllina. Í Varsjá er fjöldi safna sem vert er að skoða eins og Muzeum Poststania Warszawskiego en þar er sagt frá uppreisn borgarbúa í stríðslok 1944, Chopin Muzeum sem eins og nafnið bendir til er tileinkað pólska tónskáldsinu Fréderik Chopin og Muzeum Palac w Wilanowie sem eru Versalir þeirra Pólverja. Katedra Jana er glæsileg dómkirkja Varsjár og gamla markaðstorgið, Rynek Starego Miasta, er á Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna en þar er bæði hægt að versla og fá sér kaffisopa.
Ekki fyrir þig?
Kíktu á hina áfangastaðina okkar
Alicante
Sól og skemmtun
Amsterdam
Túlípanar og tréklossar
Berlín
Menning og ómenning
Brussel
Bjór og belgískar
Cincinnati
Drottning vestursins
Cleveland
Rokkborgin
Dallas-Fort Worth
Draumurinn rætist
Detroit
Bílar, rokk og ról
Dublin
Gleði og góð kaup
Düsseldorf
Tjútt og tíska
Edinborg
Skotapils og sekkjapípur
Frankfurt
Gleði og góðgæti
Gran Canaria
Hiti og hvítar strendur
Kaupmannahöfn
Húmor og hamingja
London Gatwick
Kaupæði og kóngafólk
Montréal
Hönnun og hokkí
New York EWR
Borgin sem aldrei sefur
New York JFK
Frægasta borg í heimi
Nýja-Delí
Ævintýri á Indlandi
Salzburg
Skíði og aprés-ski
San Francisco
Brýr og brekkur
St. Louis
Hliðið að villta vestrinu
Tenerife
Sól og sangría
Toronto
Matur og múltíkúltúr
Washington, D.C.
Minnismerki og merkisfólk