Mílanó
Hátíska og hámenning
Flug til Mílanó
Mílanó er nútímalegasta borgin á Ítalíu og ein af þremur helstu tískuborgum heims. Gucci, Prada, Duomo og da Vinci. Í Mílanó mætast tíska, hönnun og myndlist á heimsmælikvarða. Fljúgðu með WOW air til Mílanó. Kíktu í búðir, njóttu apertivo í sólinni og hins ljúfa lífs. Við hlökkum til að sjá þig!
Ítalía eru engu lík
Mílanó er nyrsta stórborg Ítalíu og sú nútímalegasta. Borgin er fjármálamiðstöð Ítalíu og ein af þremur helstu tískuborgum heims svo þar er heldur betur hægt að versla hátískufatnað frá frægum ítölskum tískuhúsum eins og Gucci, Prada og Dolce & Gabbana.
Mílanó er skemmtileg borg en þaðan má líka fara til margra fallegustu staða í heimi á auðveldan og fljótlegan hátt. Lestarsamgöngur á Ítalíu eru virkilega góðar og oft er þægilegra að ferðast með lest en að leigja bílaleigubíl.
WOW air flýgur til Malpensa-flugvallar sem er nýtískulegur og flottur og þaðan eru tíðar samgöngur til borgarinnar. Einfaldasta leiðin er að fara með hraðlestinni sem fer á hálftíma fresti til Cadorna lestarstöðvarinnar en ferðalagið tekur u.þ.b. 40 mínútur.
Síðasta kvöldmáltíðin í Mílanó!
Í Mílanó er fjöldinn allur af söfnum og merkum byggingum til að skoða, t.d. Ambrosiana-listasafnið (Pinoteca Ambrosiana), hið sögufræga verk Síðasta kvöldmáltíðin eftir Leonardo da Vinci í kirkjunni Santa Maria delle Grazie og auðvitað Duomo, fimmta stærsta dómkirkja í heimi og eitt helsta kennileiti borgarinnar.
Mörg skemmtileg verslunarsvæði eru í Mílanó. Eitt hið þekktasta kallast Tískuþríhyrningurinn, en svæðið mynda torgin Duomo, Cavour og San Babila. Elsta verslunarmiðstöð í heimi og jafnframt ein sú glæsilegasta er Gallerie Vittorio Emanuele II. Þessi mikla glerhvelfing opnaði árið 1867 og var sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Prada hefur verið með verslun þar síðan 1913. Þeir sem eru með ofnæmi fyrir dýrum merkjavörum ætti að skella sér í búðirnar á Corso di Porta Ticinese, Brera, Corso Vercelli eða á Isola svæðið fyrir aftan Garibaldi lestarstöðina. Þar er hægt að versla í minni búðum sem ekki létta pyngjuna jafnmikið.
Ekki fyrir þig?
Kíktu á hina áfangastaðina okkar
Alicante
Sól og skemmtun
Amsterdam
Túlípanar og tréklossar
Berlín
Menning og ómenning
Brussel
Bjór og belgískar
Cincinnati
Drottning vestursins
Cleveland
Rokkborgin
Dallas-Fort Worth
Draumurinn rætist
Detroit
Bílar, rokk og ról
Dublin
Gleði og góð kaup
Düsseldorf
Tjútt og tíska
Edinborg
Skotapils og sekkjapípur
Frankfurt
Gleði og góðgæti
Gran Canaria
Hiti og hvítar strendur
Kaupmannahöfn
Húmor og hamingja
London Gatwick
Kaupæði og kóngafólk
Montréal
Hönnun og hokkí
New York EWR
Borgin sem aldrei sefur
New York JFK
Frægasta borg í heimi
Nýja-Delí
Ævintýri á Indlandi
Salzburg
Ævintýri og aprés-ski
San Francisco
Brýr og brekkur
St. Louis
Hliðið að villta vestrinu
Tenerife
Sól og sangría
Toronto
Matur og múltíkúltúr
Washington, D.C.
Minnismerki og merkisfólk